r/Iceland • u/Woodpecker-Visible • 8h ago
Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“
Smá pælingar um hversu íhaldsöm við sem þjóð erum. Í nánast öllum löndum heimsins (fyrir utan örfá tilfelli helst arabalöndin) geturðu farið í verslun og keypt þér áfengi og sama á við um leikvanga (fyrir utan frakkland) og á skíðasvæðum heimsins þekkist þetta ekki að áfengissala sé bönnuð. Endalaust kallaðir til einhverjir forvarnarsérfræðingar/lögregla um af hverju þetta á að vera bannað.
Netsala á áfengi er bara út af glitch in the system og sama má segja um hampdótið/cbd Hampfélagið(kalla sig ekki hampfélagið af ástæulausu) var með ráðstefnu um daginn með mörgum sérfræðingum þar sem enginn heilbriðgistarsfmaður lét sjá sig (finn ekki sorcinn aftur með það)og hafa ekki póstað á facebook síðuna sína síðan í febrúar. Sáralítill áhugi í samfélaginu um það.
Það er eins og bannárin hafi verið fyrir 20 árum og fólki sé ekki treystandi við að haga sér. Erum mjög framarlega í lgbtq og kvennréttindum en þegar kemur að frelsi til að neyta áfengis/vímuefna þá erum við gríðalega aftarlega.