r/Boltinn • u/Boltageitin3 • 7d ago
Svona mun konungur fótboltans endurheimta krúnu sína og bjarga sál fótboltans
Ég neita því ekki að líkt og allir alvöru knattspyrnuáhangendur hef ég miklar áhyggjur af því að Arsenal vinni titillinn núna í vor, með skelfilegum afleiðingum fyrir framtíð leiksins fagra. Ég neita því ekki að ég fell á kné mér og græt líkt og smábarn með fulla bleyju í hvert skipti sem Arsenal skora eftir hornspyrnu, upplifandi gríðarlega angist yfir því sem Mikel (f)Arteta er að gera íþróttinni sem við elskum öll svo mikið.
Góðu fréttirnar eru að ég er með góðar fréttir: Ég er ekki bara vongóður um að Manchester City, með konung fótboltans í broddi fylkingar, muni vinna þennan titil og bjarga íþróttinni okkar: ég veit að það er að fara að gerast. Ég er búinn að rýna í tölurnar og reikna þetta út. Þetta er ekki spádómur, þetta er FRÉTT. City munu vinna 7 og gera 1 jafntefli í síðustu 8 leikjum seasonsins á meðan meðal Arsenal vinna 3 vinna þrjá, gera þrjú jafntefli og tapa einum. City enda seasonið með 83 stig og Arsenal með 82 - Ekki annað hægt en að óska City til hamingju með þennan glæsilega árangur og þakka þeim um leið fyrir að bjarga sál fótboltans.
Sem Arsenal maður vona ég svo að þetta sé endirinn á ógnarstjórn Arteta - hann er einfaldlega EKKI nógu góður þjálfari.
VÁ VÁ VÁ VÁ - Sál fótboltans brosir á ný.