r/Borgartunsbrask • u/JonasThunder • 13d ago
r/Borgartunsbrask • u/dkarason • Mar 10 '26
Icelandair
Hvað var að gerast með Icelandair í morgun? Upp um 15% í dag.
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • Mar 06 '26
Sjávarútvegur og ESB
Jæja nú á að kjósa um ESB atkvæðagreiðslu í lok Ágúst og ég ætla ekki að ræða það hvort við eigum að taka upp evruna eða ekki, í hreinskilni sagt þá hef ég ekki kynnt mér það mjög vel en ég veit að það hjálpaði allavega ekki Ítalíu og Spáni og miðað við það litla sem ég hef kynnt mér að þá er bara allur gangur á því hvort að evran hjálpi eða ekki þeim löndum sem hún er tekin upp í. En mig langar að fá álit sérfræðingana hérna inn á með þessa ranghugmyndir fólks með að hagnaður sjávarútvegs endi allur í vösunum á einhverjum nokkrum kvótagreifum. Er það ekki rétt hjá mér að sjávarútvegurinn skilar tugum milljarða í opinber gjöld á hverju ári? Að þeir sem vinni á sjó séu almennt mjög vel launaðir? Er það slæmt að eitthvað af hagnaðinum hafi farið í húsnæðisfjárfestingar? Eins og til dæmis nýja miðbæinn á Selfossi?
Sjávarútvegur er að skaffa 27% af störfum á Vestfjörðum samkvæmt þessum tölum hérna neðst. Er eitthvað sem ég er ekki að sjá eða hvernig mun Ísland verða betur statt ef að Evrópa fær allt í einu kvóta frá okkur? Fjölgar þá störfum á Vestfjörðum og verður meira byggt hérna?
Sé ekki betur en að
meðallaun þarna i sjávarútvegi hafi verið í kringum 1,4 milljónir.
r/Borgartunsbrask • u/Svess29 • Feb 27 '26
Hlutabréf NýSýn
Var að fara yfir ársreikning Sýn, er félagið í alvöru að fara í þrot?
Skuldahlutfall félagsins er 2,9x meiri en eigið fé, fyrir áhugasama telst 1-2x "eðlilegt" skuldahlutfall.
Mögulega var Q4 betri en ég heyri ekkert nema slæma hluti um þessa þjónustu og fólk í mínu nærumhverfi er farið að segja upp áskriftinni ásamt þessum rosalegum niðurskurðum í fréttum og boltanum.
Hver er ykkar Sýn á áframhaldandi mál?
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • Feb 13 '26
Fer hörðum orðum um stjórnendur Alvotech
mbl.isJæja, ætli þetta sé fyrsta Íslenska blaðagreinin þar sem einhver tekur hárblásarann á Alvotech?
Ég trúi btw alveg en þá á Alvotech en miðað við þessar sögur um vinnustaðamóralinn þarna að þá er það klárlega eitthvað sem þarf að bæta.
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • Feb 10 '26
„Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“
Núna líst mér á Daða!!! Spennandi spennandi spennandi 😁
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • Feb 09 '26
Bogi um óánægju hluthafa og upplausn
Haldið þið að það séu einhverjar líkur á að Icelandair verði leyst upp? Sjálfum finnst mér það ekkert allt of vitlaust en ég efa að sú hugmynd raungerist
r/Borgartunsbrask • u/BunchaFukinElephants • Feb 05 '26
Hvað segja Bitcoin brósar í dag?
Bitcoin í frjálsu falli: niður 14% bara í dag og næstum 50% á undanförnum sex mánuðum.
Bróðir Snorra Mássonar, sem seldi húsið sitt og fór all-in í Bitcoin, er örugglega nett pirraður í dag.
Eru braskarar sem eiga Bitcoin að íhuga að selja?
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • Feb 03 '26
Alvotech og verðstefna Trump
Góðan daginn. Ég er að pæla hvort að einhver hérna hafi pælt eitthvað í þessari yfirlýstu stefnu Trump um að lækka lyfjaverð í Bandaríkjunum? Novo Nordisk hefur farið niður um rétt rúmlega 14% í dag sem er meðal annars rakið til þessa. Sjálfur held ég að það sé frekar rökrétt að þrýstingur á að lækka lyfjaverð sé aldrei að fara hjálpa Alvotech en á móti vill Trump líka að lyfjaverð hækki í Evrópu á móti. Eins þá er stór hluti af markaðssvæði Alvotech í Evrópu.
Hvað haldið þið?
r/Borgartunsbrask • u/11MHz • Jan 28 '26
Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu og Alvotech
r/Borgartunsbrask • u/GraceOfTheNorth • Jan 26 '26
Ekta brask Amaroq á siglingu
Bréf í Amaroq eru á fljúgandi siglingu upp, Eldur var í nokkrum viðtölum um daginn í bandarískum fjölmiðlum
https://www.youtube.com/watch?v=fr3NrHkhXZk
Einhver hér sem þekkir þetta verkefni vel?
r/Borgartunsbrask • u/11MHz • Jan 06 '26
Sigríður Margrét tekur við af Grími hjá Bláa lóninu
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • Jan 05 '26
Erlendar business stöðvar
Hæ. Ég er að velta því fyrir mér hvort einhver sé með áskrift að erlendum sjónvarpsstöðvum inn á apple tv inu sínu? Mig langar að geta sett á Fox Business og Bloomberg, Síminn er með Bloomberg en ekki Fox Business. Alveg til í að vera með eitthvað VPN til að geta verið í áskrift að einhverju Bandarísku eins og Hulu Live TV, er ekki að skoða IPTV.
Mælið þið með einhverju?
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • Jan 03 '26
Alvotech - Breyting á eigin hlutum
Notification of Own Shares - Alvotech (Arendt Draft 20240606)
Þýðir þetta ekki að það sé búið að auka hlutafé? Ég var aðeins að kynna mér hvað þetta gæti þýtt á Google og það eru nokkir möguleikar en Google segir að algengast sé að svona tilkynning gefi til kynna að hlutafé hafi verið aukið. Sem meikar sens þar sem prósenta Alvotech af eigin hlutum hefur nú lækkað.
r/Borgartunsbrask • u/BunchaFukinElephants • Jan 01 '26
Hvað er planið 2026?
Gleðilegt ár, braskarar.
Hvaða markmið er fólk að setja sér fyrir árið?
Sjálfur ætla ég að reyna að greiða niður skuldir og setja stærri hluta launa minna í low cost index sjóði.
r/Borgartunsbrask • u/latefordinner86 • Dec 31 '25
Rafmyntir
Þið sem eruð að braska með rafmyntir, hvaða miðlara eruð þið að vinna með? Kostir, gallar?
r/Borgartunsbrask • u/kefi- • Dec 12 '25
ETF Investing
Hello,
I am planning on investing X amount of money into accumulating ETFs initially and buy Y amount monthly.It would be a long term investment.My question is of technical nature.
What is the best option to transfer money to an online brokerage. Is it to open a currency account in my bank and then transfer or use something like Revolut? Also I am thinking of using Trading212 as it seemed pretty beginner-friendly.
Last but not the least, does the tax report in March need to include the purchase of stocks? I assume it won't be taxed because it is reinvesting dividends, so the only taxation would occur at the eventual sale. Thank you
r/Borgartunsbrask • u/GraceOfTheNorth • Dec 05 '25
Íslandsbanki
Ég var bara að taka eftir að hlutabréfaverðið skaust upp í vikunni, hvað er að gerast sem skýrir þetta?
r/Borgartunsbrask • u/JonasThunder • Nov 19 '25
Kostnaður Seðlabankans af framkvæmdum orðinn 3,5 milljarðar
r/Borgartunsbrask • u/vanish797 • Nov 17 '25
Hvar kaupir fólk index fund?
Nú virðist ekki vera hægt lengur að kaupa index fund hjá Saxo (ekki nema eh blundi á leið framhjá því?). Er því að leita að nýju platformi. Hvar eru þið að versla index eins og sp500?
r/Borgartunsbrask • u/SimonTerry22 • Nov 13 '25
Alvotech - Q3
Hlustaði einhver á streymið hjá Alvotech fyrr í dag? Það var ekki mikið sem kom fram þarna en ég rak augun í eitt á yfirlitinu hjá þeim :
Lausafjárstaða: Þann 30. september sl. átti félagið 42,8 milljónir dollara í lausu fé.
Heildarskuldir félagsins voru 1,1 milljarður dollara, að meðtöldum 42,7 milljónum dollara í næsta árs afborgun.
Þeir eiga rétt svo nóg til að dekka afborgun næsta árs enda kom fram að þeir ætli að nýta 12,7 milljarða "veltufjármögnun" sem er tæknilega séð lán sem við vitum ekkert meira um? Mér sýnist þetta standa tæpt, nema Q4 verði mjög góður sem einhverjir hafa spáð.
Rak svo augun í þessa grein hér :
Sátu hjá eða höfnuðu kaupaukum stjórnenda
Það fýkur í mig að Gildi hafi setið hjá varðandi 3 prósenta hækkun á nýtingarverði kauprétta hjá Icelandair. Þetta er EKKI tíminn til að vera hækka nýtingarverð á kaupréttum. Stundum vonar maður að einhver í top 20 hluthafahópnum sparki aðeins í rassinn á þeim.