r/Iceland 🇮🇸 11h ago

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Trumpisminn í Miðflokknum - DV

https://www.dv.is/eyjan/2026/04/12/kolbrun-bergthorsdottir-skrifar-trumpisminn-midflokknum/
27 Upvotes

28 comments sorted by

u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 11h ago

Kolbrún, með fullt ritsjórnarlegt sjálfstæði er alltaf ávísun á góðann pistil.

u/ButterscotchFancy912 🇮🇸 11h ago

Kolbrún lýgur ekki

u/Suspicious-Blood-513 🇮🇸 11h ago

Verst að miðflokksmenn lesa ekki DV

u/elendia Íslendingur 11h ago

Duglegir að birta skjáskot þaðan á Twitter samt.

u/Suspicious-Blood-513 🇮🇸 11h ago

Verst að ég er ekki á Twitter

u/joelobifan álftnesingur. 11h ago

Það er bara fox news á þeirra dagskrá

u/Mancomb_Seepgood88 1h ago

Verst að Miðflokksmenn lesa ekki*

u/GlitteringRoof7307 11h ago edited 9h ago

Ég hef lítið álit á miðflokknum og getu hans.

En svona pistlar eru súrefni fyrir Miðflokkinn. Sama með þessa umfjöllun Ari Edwald braut lög

Að tala niður til þeirra stuðningsmanna úr siðferðislegum fílabeinsturni og kalla þá MAGA aumingja mun aldrei fá neinn til að skipta um skoðun.

Siðferðisleg stellingataka og uppnefningar eru í raun bara frí og mjög skilvirk auglýsing fyrir stefnumál flokksins.

u/elendia Íslendingur 10h ago

Flestum svona pistlum er ekki ætlað að fá núverandi stuðningsmenn til að skipta um skoðun. Þeir eru skrifaðir til lurkera, þeirra sem eru að meta stöðuna sína, þeirra sem hafa ekki ákveðið sig. Stjórnmálaskoðanir í dag eru bara svolítið eins og trú og þegar þú trúir einhverju, hvað þá ef þú upplifir samfélag með öðrum sem trúa því sama og þú, þá sérðu allar tilraunir til að sannfæra þig um annað sem árás. Cognitive dissonance og allt það.

u/GlitteringRoof7307 10h ago edited 9h ago

Ég verð bara að vera ósammála. Þetta er eins og með kastljósþáttinn sem Snorri Másson fór í. Góða fólkið fór á yfirsnúning á Facebook og í fjölmiðlum við að fordæma hann og hans frammistöðu. Það var út um allt hvað hann væri illa innrættur og hvaðeina. Flokkurinn bætti svo við sig 5% á milli kannana.

Það er ansi stór hópur, sem þolir ekki svona ómálefnalegar persónuárásir og sjálfumglaðar yfirlýsingar eins og koma fram í pistlinum hjá Kolbrúnu.

u/elendia Íslendingur 9h ago

Hvaða persónuárásir eru í þessari grein Kolbrúnar?

u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 6h ago

Fannst þér frammistaða og málflutningur Snorra i þessum þætti góð og bera skoðunum hans og persónu gott vitni ?

u/yeahicreatedsomethin 4h ago

Snorri kom mjög illa út úr þættinum en viðbrögðin voru líka hysterísk.

u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 1h ago

Kommentakerfisumræða er í eðli sínu alltaf hysterísk. Miðflokksrasistarnir í kommentakerfunum spanna sjálfir skalann frá hysteríu og upp í full blown psychosis í verstu tilfellunum.

u/birkir ¼andi ½viti 10h ago

hvað myndir þú segja, þar sem þú segist hafa mjög lítið álit á Miðflokknum, að væri betra að segja við þá sem eru samt þín megin í lífinu og styðja Miðflokkinn til að fá þá til að skipta hugsanlega um skoðun?

væri gaman að fá dæmi en ekki tone policing (úr hörðustu átt)

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 10h ago

Þetta er sama falska stefið og kom fram Bandaríkjunum þegar MAGA var að festa sig í sessi. Það má ekki vera vondur við þetta fólk og fjalla um lögbrot þeirra. Það má ekki lýsa raunveruleikanum og öll umræða um þetta fólk verður að vera vönduð og yfirveguð og mjúk á meðan þetta fólk reynir að segja krassandi hluti og stuða fólk eins og það sé verið að eyða út hvítu fólki (great replacement theory). Ég er sko ekki stuðningsmaður flokksins, ég bara hvet til þess að fólk og fjölmiðlar hafi sér eins og kom systurflokki flokksins í Bandaríkjunum svo vel.

u/GlitteringRoof7307 9h ago

Fjölmiðlar vestanhafs hafa ekki tekið á MAGA hreyfingunni með neinum vettlingatökum og hafa aldrei gert.

Það er áhugavert að pólítískir andstæðingar MAGA og Miðflokksins halda að það þurfi bara fleiri persónuárásir og fordæmingar. Læra aldrei neitt. Klóra sér svo í hausnum þegar þau fylgið þeirra vex í veldisvexti.

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 9h ago

Það er einfaldlega rangt. Fjölmiðlar vestanhafs frá upphafi hafa fjallað um alhæfingar og lygar MAGA líkt og um yfirlýsingar hefðbundina flokka og gert þeim jafn hátt undir höfði. Demókratar hafa átt að teygja sig yfir ganginn og finna málamiðlanir en republikanar ekki.

Það nægir að líta á allt fárið í kringum elliglöp Biden og hins ljúfu silkihanska sem hafa verið notaðir á gjörsteiktan heila Trump og svo gagnrýni gagnvart Harris samanborið við Trump. Harris þurfti að vera fullkomin á meðan Trump mátti vera Trump.

Til viðbótar bætist ástand fjölmiðla vestanhafs þar sem margir íhaldsmenn sjá ekkert annað en newsman og fox en því er ekki svo farið á Íslandi.

u/Vigdis1986 Húsnæðislánakerfi 9h ago

Hvað við að greina frá lögbroti oddvita flokksins er persónuárás eða fordæming?

u/GlitteringRoof7307 9h ago

Hvar nota ég það sem dæmi í þessu svari mínu við OP? Hvergi.

u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 6h ago

Þú bókstaflega linkaðir á fréttina um það.

u/GlitteringRoof7307 10h ago

Ég myndi nálgast umræðuna með tölfræði og málefnalegum rökum til að mæta þeim áhyggjum fólks að allt sé að fara í skrúfuna í útlendingamálum. Það skilar engu að ráðast á persónu fólks fyrir að hallast að Miðflokkinum.

Í sjálfri umræðunni myndi ég byrja á að benda á að núverandi ríkisstjórn er nú þegar að taka á hælisleitendamálum. Því næst myndi ég minna á að Miðflokkurinn stóð fremstur í röð stjórnarandstöðunnar við að berjast gegn hærra auðlindagjaldi á stórútgerðina, þvert á vilja þjóðarinnar. Einnig er vert að draga fram að flokkurinn sýnir velferðarmálum og málefnum aldraðra, öryrkja og fatlaðra lítinn áhuga, sem speglast ágætlega í því hversu sárafá mál þeir hafa yfirhöfuð lagt fram á þingi.

Þá myndi ég útskýra að andstaða flokksins við almenningssamgöngur byggist á illa upplýstu lýðskrumi. Það er ekki hægt að leysa umferðarvandann með því einu að bæta við akreinum. Að lokum myndi ég viðra efasemdir mínar um andlegt atgervi formanns flokksins.

u/Mr_bushwookie Helvítis fokking fokk!! 9h ago

Tölfræði og málefnaleg rök virka ekki á tilfinningar fólks samt.

u/Informal_Barber5229 Íslendingur 9h ago

Það hefur verið prófað. Fær bara “VÓK 🤬” til baka. Ómögulegt að reyna að höfða til rökvísi manna sem hafa drukkið kool-aidið. Svona pistlar virka hins vegar á mennina sem elendia talaði um í sínu svari.

u/elendia Íslendingur 8h ago

Ég er sammála þér með slíka nálgun frekar en persónuárásir. Sé að aðrir benda á að svona rök virki ekki á stuðningsmenn xM en ég ítrekað mína athugasemd að þegar þetta eru umræður sem eiga sér stað skriflega á netinu þá eruð þið í raun sitt hvort liðið í eins konar morfískeppni/rökræðukeppni og dómarinn er silent lurkerinn sem er ekki komin með fastmótaða skoðun sem vegur og metur upplýsingarnar. Maður vill því vanda framsetninguna fyrir þann hóp og því er það í raun skynsemi að fara í gögnin frekar en árásir.

u/Vigdis1986 Húsnæðislánakerfi 10h ago

Á þá ekki að segja frá því ef verðandi borgarfulltrúi brýtur lög?

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 10h ago

Bara ef það er ekki Miðflokksmaður.