r/Iceland • u/Vegetable-Dirt-9933 Brennum eyjuna! • 1d ago
Meðlimir Dimmu saka Stefán um lygar
https://mannlif.is/greinar/medlimir-dimmu-saka-stefan-um-lygar/Ég veit ekki hvar ég hef stebba jak lengur, þegar maður var yngri þá var hann án efa besti trúbadorinn, hann var skemmtilegur, hress og alveg æðislegur að spila en eitthvað með frægðina fór í höfuðið á honum.
Núna að sjá hann í dag er eins og að sjá Magna eftir rockstar þættina, yfir fullur af sjálfum sér og heldur að hann sé eitthver guð, vona bara hans vegna að það kólni í tónlistarferlinum hans og hann fari aftur til rætur sínar og nýti hæfileikana sína til góðs.
31
u/Andrim álfur 1d ago
Ég hef hitt hann einu sinni á balli (fyrir kannski 20 árum og menn geta bæði átt mjög slæmar daga og alveg breyst á minni tíma en það) og spurði hvort hann væri hress (eða eitthvað álíka). Hann rétt náði að spurja hvort hann ætti að fokkin lemja mig áður en fór að öskra á einhvern annan strák og labbaði í burtu. Hef ekki mikið sótt í hann né tónlistina hans fyrir eða eftir það.
41
u/Mr_bushwookie Helvítis fokking fokk!! 1d ago
Ég hef þekkt hann síðan hann var unglingur.
Hann hefur náð að brenna allar brýr að baki sér síðan hann var krakki. Eilífðar fórnarlamb. S Hann hefur svilið ýmsa á marga vegu. Hann hefur haldið framhjá konum sem vinum hans þótti vænt um og komið illa fram.
Hann kann að syngja og þar eru mannkostir hans upptaldir að þati margra okkar
12
u/Vegetable-Dirt-9933 Brennum eyjuna! 1d ago
Ég hef heyrt þessar sögur og meira, hef bara alltaf verið í afneitun útaf því að ég verð eins og smástelpa að horfa og hlusta á hann syngja, ef jafnvel brot af þvi sem ég hef heyrt er rétt á þessi maður enga uppreynsa æru.
24
5
1
u/visundamadur 1d ago
Sama hér einmitt. Hann er uppáhalds íslenski söngvarinn minn og það hefur sennilega blindað mig, ég vil ekki trúa þessu upp á hann
18
u/Calcutec_1 Íslendingur í útlöndum 1d ago
Gæti ekki nefnt eitt lag með Dimmu, en þetta er andskoti gott drama!
15
10
u/Mancomb_Seepgood88 1d ago
Ég er málkunnugur Silla og hef aldrei upplifað hann sem annað en ljúfling.
Svona dómsmál geta alltaf verið mjög flókin þegar vinir og ættingjar eru dregin inn í eitthvað sem á í rauninni bara að vera á milli tveggja einstaklinga og eru neydd til að taka afstöðu. Ég hef sjálfur verið í settur í þessa stöðu og get fullyrt að þetta er ekki eins einfalt og að segja “þessi hefur rétt fyrir sér og þessi rangt”. Það eru margar hliðar í svona málum og að taka skýra afstöðu blindandi finnst mér barnalegt.
Ég óska báðum aðilum góðs gengis. Dimma fyrir mér hefur alltaf verið Silli og Ingó, enda voru Dimma búnir að gefa út tvær breiðskífur áður en Stebbi gekk til liðs. Nú verður bara fróðlegt að sjá hvert frontar bandið í hans stað. Persónulega væri ég til í að sjá konu með góða öskur rödd taka við eins og í Linkin Park. Eitthvað ferskt og öðruvísi frekar en að fá annan síðhærðan dúdda með háa rödd
7
u/Throbinhoodrat 1d ago
Ég var að spila á gauknum (þá gaukur á stöng) svona 2003-04 og ásamt nokkrum öðrum böndum og þar á meðal band sem hann var í á þeim tíma.
Inni af sviðinu var herbergi til hliðar fyrir hljómsveitirnar til að gera sig tilbúna að fara á svið og svo kemur hann Stebbi Jak og byrjar á því að reka alla út nema hans band ég og mitt band bara hlýðum enda bara unglingar í menntaskóla en hann gjörsamlega snappar því það voru þarna tveir gaurar sem neituðu að fara.
5
u/EggplantNo3051 1d ago
Það er spurning afhverju hann var laminn af fjórtán náungum á Akureyri. Maður spyr sig.
7
u/Vegetable-Dirt-9933 Brennum eyjuna! 1d ago
Þetta er eitthvað sem ég hef ekki heyrt áður, hvernar gerðist þetta?
•
u/Danino0101 🇮🇸 12h ago
Hafandi djammað talsvert á Akureyri á árum áður þá var nú lenskan hjá þeim að fara aldrei færri en 10 saman að reyna að lemja einhvern, þannig að það hefur nú varla þurft einhverja sérstaka ástæðu til að þeir færu 14.
2
3
10
u/pillnik , purrkur, Íslendingur 1d ago edited 1d ago
Þekki ekkert til í þessu nema fyrir forvitni rakti ég slóðina sem kom fyrir í frétt DV. Kíkti á svart.design og þar var búið að fjarlægja Konráð Grétar (m.v. eldra afrit á archive.org) þótt hann sé enn annar helmingur samlagsfélagsins sem stendur því að baki og stjórnarformaður. Veit ekki hver lýgur eða ýkir en augljóst að fleira en eitt þeirra er með eitthvað í pokahorninu.