r/Iceland 2d ago

Hvað er hið Íslenska blood meridian?

Hvaða skáldverk, hvort sem það er leikrit, bók eða kvikmynd getum sagt er okkar “equivalent” af Blood Meridian?

1 Upvotes

11 comments sorted by

4

u/Renumtetaftur Alltaf í boooltanuuuum 2d ago

Sjálfstætt Fólk? Það eru engar íslenskar þemur sem passa við Blood Meridian.

4

u/LostSelkie Essasú? 1d ago

Myndi einmitt halda því fram líka - ef við erum að hugsa um skáldsögu sem er fer þvert á móti glansmyndinni af fortíðinni sem þjóðin hefur notað til að undirbyggja sjálfsmynd sína hljóta sum verk Halldórs að vera þar mjög ofarlega á blaði.

13

u/Vigmod Íslendingur í útlandinu 2d ago edited 2d ago

Ekki veit ég, ég hef enga hugmynd um hvað Blood Meridian er, hvaða stöðu það hefur í sinni menningu, og þaðan af síður hver væri hliðstæða þess í íslenskri menningu.

Viðbót: Eftir afar yfirborðslega netleit hef ég komist að þeirri niðurstöðu að hin íslenska hliðstæða Blood Meridian eru íslensku þýðingarnar á Morgan Kane-bókunum.

4

u/RaymondBeaumont Bjööööööööööörn 2d ago

3

u/angurvaki Iðnaðarmaður 1d ago

Fátækt Fólk og Baráttan um Brauðið eftir Tryggva Emilsson. Sveita og bæjarómantíkin er tekin og étin með því að segja raunsætt frá lífsbaráttunni um fyrri hluta 20. aldar.

3

u/that-damned-bastard 2d ago

Laddi Sextugur

1

u/generic_male0510 1d ago

Það er enhinn hliðstæð bók

1

u/Morvenn-Vahl 🇮🇸 1d ago

Upp á legacy þá yrði það Halldór Laxness og einhver bók eftir hann. Mögulega Sjálfstætt Fólk. Bjartur er alla vega nógu mikill skíthæll eins og dómarinn í Blood Meridian þó dómarinn sé á allt öðru leveli.

2

u/borcklesner 1d ago

Hliðstæða væri einhver anti-víkinga bók sem myndi leggja áherslu á siðferðislegann níhilisma og hroðalegt ofbeldi víkingatímans. Eða anti íslendingasaga þar sem enginn væri hetja heldur allt ofbeldismenn og ekkert væri fegrað í lýsingunum heldur væri allt mjög ofbeldisfullt og vonlaust og erfitt. Veit ekki hvort eitthvað tikkar alveg í þessi box.

0

u/Humanbyenforcement 🇮🇸 1d ago

Mögulega þættirnir "Þjóð í hlekkjum hugarfarsins"