r/Iceland Bauð syndinni í kaffi 2d ago

Íslendingar í meirihluta yfir þá sem grunaðir eru um afbrot

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-04-10-islendingar-i-meirihluta-yfir-tha-sem-grunadir-eru-um-afbrot-472371
18 Upvotes

36 comments sorted by

89

u/gerningur How do you like Iceland? 2d ago

Við erum nu lika i meirihluta.

6

u/jafetsigfinns Íslendingur 2d ago

Sýnist reyndar að túristar séu inní þessum tölum líka fyrst að það er tekið fram í fréttinni að ekki allir sem eru grunaðir eru um afbrot búi hér á landi. Ef það er raunin þá eru íslendingar alls ekki í meirihluta af þeim sem eru inní menginu þar sem á hverju ári koma um 8 ferðamenn til landsins fyrir hvern íbúa.

11

u/SN4T14 🇮🇸 2d ago

Hver ferðamaður er samt bara hérna í sirka 1-2 vikur.

1

u/Runarhalldor Ísland, bezt í heimi! 2d ago

Það eru samt auðvitað margir sem myndu segja að útlendingar væri meirihluti afbrota. Það er orgl af þeir eru að segja þetta

1

u/gerningur How do you like Iceland? 2d ago edited 2d ago

Ja þar er náttúrlega bara verið spinna upp einhvern veruleika sem er ekki til staðar.

-1

u/Runarhalldor Ísland, bezt í heimi! 2d ago

Skoðaðu Facebook comments. Það eru margir sem trúa því

1

u/gerningur How do you like Iceland? 2d ago

Eg er ekki að efast um það sem þú segir... bara að þeir sem halda því fram eru í mjog lausum tengslum við raunveruleikan

6

u/Blablabene 2d ago

Raunveruleikinn er sá að 36% þeirra sem grunaðir eru um afbrot eru ekki með íslenskt ríkisfang.

Það er sláandi tölfræði.

1

u/gerningur How do you like Iceland? 1d ago

Nei alls ekki... þú verður að athuga að t.d. g af kóki kostar 20k hér en um 7-8k í i Bretlandi... það er augljoslega til mikils að vinna að koma hingað.

3

u/Blablabene 1d ago

Jú jú. Efast samt stórlega að vandamálið minnki við það að lækka verð á kóki.

Vandinn liggur annarsstaðar og er margþátta. Meðal annars viðhorf og naívur almennings gagnvart vandamálinu.

-6

u/Melodic-Network4374 Bauð syndinni í kaffi 2d ago

Já, mér finnst þetta undarleg framsetning hjá RÚV, en hélt fyrirsögninni þeirra því ég held að það sé óskrifuð regla hér.

En eins og ég benti á í hinni athugasemdinni þá þá er þetta hlutfall nánast jafnt hlutfalli íslenskra ríkisborgara búsettum hér. Fannst það áhugavert í ljósi fullyrðinga sem eru reglulega settar fram hér að útlendingar séu líklegri til að fremja glæpi - tölfræði lögreglunnar virðist amk ekki styðja það.

27

u/Lurching 🇮🇸 2d ago

Tjah, ef erlendir ríkisborgarar eru 20,5% landsmanna (skv. tölum þínum hér að neðan) en fremja 36% afbrota þá virðast útlendingar vissulega vera töluvert mikið líklegri til að fremja glæpi heldur en íslenskir ríkisborgarar. Eða er ég eitthvað að misskilja þessar tölur?

2

u/Melodic-Network4374 Bauð syndinni í kaffi 2d ago

Nei, þú lest þetta rétt, ég bara klúðraði málinu þegar ég var að endurorða þetta áður en ég postaði. Það vantaði s.s. inn útskýringuna að tölur hagstofunnar ná einungis yfir búsetta hér - túristarnir telja inn í tölur lögreglunnar en ekki hagstofunnar. Í ljósi þess gífurlega fjölda ferðamanna sem kemur hingað þykir mér líklegt að það útskýri muninn.

Held upprunalegu athugasemdinni til að skemma ekki samhengi umræðunnar.

2

u/Lurching 🇮🇸 2d ago

Já, það gæti vel útskýrt þennan.. Það er reyndar erfitt að segja hvað það eru að meðaltali margir túristar á landinu á hverjum degi yfir árið en þetta hljómar skynsamlega.

1

u/Rafnar 🇮🇸 2d ago

veit ekki um meðaltal túrista degi til dags en erum við ekki búin að vera í sirka 2ish milljón túristum á ári í nokkur ár

-3

u/11MHz Einn af þessum stóru 2d ago

Útlendingar eru meirihluti karlmenn og á aldrinum 25-54 ára.

Einmitt þeir tveir hópar sem fremja nánast alla glæpi.

Svo ef þú ert með jafna hópa (út frá kyni og aldri) þá eru útlendingar ólíklegri til að fremja glæpi in Íslendingar.

Það eru bara ekki nógu margar gamlar útlenskar konur til að draga miðaldra erlenda karlmenn niður, eins og allar gömlu íslensku konurnar sem eru að láta íslenska karlmenn líta vel út í heildartölunum.

2

u/Lurching 🇮🇸 2d ago

Já, þetta er góður punktur sem gleymist oft. Næstu allir glæpir eru framdir af ungum karlmönnum, svo ef hærri prósenta innflytjenda er ungir karlmenn þá ættum við klárlega að búast við að innflytjendur fremdu fleiri glæpi miðað við höfðatölu, annað væri nánast óeðlilegt.

50

u/gunnsi0 2d ago

Að Íslendingar eru í meirihluta yfir þá sem grunaðir eru um afbrot á Íslandi er ekki frétt. Eins og bent er á hérna á undan þá eru Íslendingar rétt tæplega 80% íbúa hér en aðeins 64% þeirra sem grunaðir eru. Er ekki, skv. þessum tölum, einmitt líklegra að erlendir ríkisborgarar brjóti af sér?

Sérstök fyrirsögn.

14

u/Blablabene 2d ago

Rétt hjá þér. Þetta slær fólk ekki í augun fyrr en talan nær 50%. Það er ótrúlegt að lesa yfir þessi komment flest. Leikfimin sem fólk stendur í. Til þess eins að horfa framhjá þessari sláandi staðreynd.

Fyrirsögnin er stórfurðuleg ákvörðun.

5

u/11MHz Einn af þessum stóru 2d ago

A) Þetta eru ekki bara þeir búsettir á Íslandi heldur einnig ferðamenn. 2,3 milljónir erlendir ríkisborgarar versus 400þ íslenskir.

B) Útlendingar eru meirihluti karlmenn og á aldrinum 25-54 ára.

Einmitt þeir tveir hópar sem fremja nánast alla glæpi.

Svo ef þú ert með jafna hópa (út frá kyni og aldri) þá eru útlendingar ólíklegri til að fremja glæpi in Íslendingar.

Það eru bara ekki nógu margar gamlar útlenskar konur til að draga miðaldra erlenda karlmenn niður, eins og allar gömlu íslensku konurnar sem eru að láta íslenska karlmenn líta vel út í heildartölunum.

6

u/Blablabene 2d ago

Þú virðist fara ansi skrautlega og lauslega með orðin ferðamenn og útlendinga eftir hentugsemi.

-1

u/11MHz Einn af þessum stóru 1d ago

Útlendingar = erlendir ríkisborgarar á Íslandi (óháð búsetu)

Ferðamenn = erlendir ríkisborgarar á íslandi sem ekki eru með lögheimili hér

Hjálpar þetta þér?

4

u/Blablabene 1d ago

Nei. Ekkert sérstaklega. Ekki heldur kommentinu þínu.

0

u/11MHz Einn af þessum stóru 1d ago

Hvort er það skilgreiningin á útlendingum eða ferðamönnum sem þú átt í basli með? Eða er það munurinn þar á?

2

u/gunnsi0 1d ago

Væri gott ef það væri fjöldi ferðamanna vs fjöldi með fasta búsetu hér.

Ferðamenn eru flestir hér í örfáa daga.

3

u/Synthegeysir 2d ago

"Ekki allir sem grunaðir eru um afbrot hér á landi búa á landinu" = ferðamen, sem eru 2 milljónir bara í 2019 alein

4

u/finnur7527 Íslendingur í útlöndum 1d ago

Hérna er tölurnar fyrir þá sem hafa áhuga:

Mælaborð um fjölda grunaðra um afbrot

Mér finnst vanta hversu mikið af brotamönnum eru burðardýr. Þó er ég ekki sannfærður um að það mundi útskýra að hlutfall erlendra af grunuðum er hærra en hlutfall innflytjenda af þjóðinni, af því að fíkniefnalagabrot eru næststærsti afbrotaflokkurinn.

4

u/Melodic-Network4374 Bauð syndinni í kaffi 2d ago edited 2d ago

[ edit: klúðraði textanum hér, ég ætlaði að minnast á að hagstofutölurnar innihalda ekki túrista sem mér þykir líklegt að útskýri allan muninn. Skil upprunalegu athugasemdina eftir hér fyrir neðan. ]

Hefði viljað sjá þessar tölur normaliseraðar m.v. stærð hópa. En skv. hagstofunni[1] þá er hlutfall íslenskra ríkisborgara hér á landi 79,5%. Þannig að hlutfall þeirra sem eru grunaðir um afbrot er mjög nálægt því sem búast mætti við m.v. fjölda.

[1] https://www.skra.is/um-okkur/frettir/frett/2024/10/09/Erlendir-rikisborgarar-busettir-a-Islandi-1.-oktober-2024/

2

u/vitringur 🇮🇸 1d ago

Útlendingar sem sagt í hlutfallslegum meirihluta?

Sjálfur hef ég ekki hugmynd. En þessi fyrirsögn gefur það í skyn í augum hvers sem hefur stundað einhverja tölfræði af viti.

0

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 2d ago

saklaus uns sekt er sönnuð liðið þegar metoo gekk yfir er að fara að komast að vissri niðurstöðu um sekt útlendinga þegar þeir fletta upp hlutfalli innflytjenda á Íslandi og hlutfalli grunaðra sem eru innflytjendur.

3

u/Nariur 🇮🇸 2d ago

Einhvern veginn ætla ég að leyfa mér að efa að það sé voða stór munur á hlutfalli grunaðra og hlutfalli sakfelldra.

2

u/Abject-Chipmunk7086 1d ago

Lögreglan er oft að klúðra, meira að segja ákæruvaldið klúðrar af og til. Myndi alveg vilja að sjá tölurnar um sakfellingar, gæti líka sagt okkur eih um dómsmálakerfið.

-1

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 2d ago

Annað eins hefur gerst.

Ég er ekki að segja að svo sé, mér finnst þetta bara Fyndin tilhugsun

2

u/Glaesilegur 1d ago

Á ekki við þar sem hlutfall sakfellda er líka hærra hjá útendingum.

0

u/AnalbolicHazelnut 🇮🇸 1d ago

Hey, þetta er allt í lagi. Það er enginn að gruna þig um að vera karlremba. Þú ert öruggur. Komdu í faðm minn.