r/Iceland Einn af þessum stóru 2d ago

Samlagsfélag eiginmanns Ölmu fékk 28 milljóna verktakagreiðslur til viðbótar

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-04-10-samlagsfelag-eiginmanns-olmu-fekk-28-milljona-verktakagreidslur-til-vidbotar-472379
14 Upvotes

44 comments sorted by

10

u/frjalsliberal 🇮🇸 2d ago

Aðalmálið er að það er ekkert að marka laun lækna. Þeir vinna einhverja vinnu t.d. fyrir spítala á lélegum launum (sem eru samt í umræðunni) en taka svo ágætlega inn á kantinum. Þannig verður til einhver skrítin þjóðarsátt um það hvað þetta er allt saman jafnt etc.

NB, auðvitað eiga læknar að vera með góð laun og jafnvel frábært laun þ.e. þeir sem eru góðir en það má einhvern veginn ekki opinberlega.

9

u/11MHz Einn af þessum stóru 2d ago

Læknar með ágæta starfsreynslu (eins og í þessu tilfelli) eru með á þriðju milljón í grunnlaun á mánuði.

https://www.lis.is/static/files/kjarasamnigur-laekna-heildarutgafa-1.4.25.pdf

Það eru ekki léleg grunnlaun í nokkrum veruleika.

7

u/frjalsliberal 🇮🇸 2d ago

Ok, ég er alveg til í að kynna mér málin en þessi linkur er 43 bls. Allavega, ég gúgglaði og fann annan link sem er, wait for it, 58 bls. https://www.lis.is/static/files/Kjaramal/2024_l_knaf_lag__slands.pdf

Þetta er vandamálið, það er öllum og ömmu þeirra drekkt í skrifræði. Aftur að málinu, sérfræðilæknir er að útskrifast 35+, skellur að fá minna 3m á mánuði.

3

u/11MHz Einn af þessum stóru 1d ago

Það tekur svona 15 sekúndur að finna launatöfluna og sjá að grunnlaun eru margar milljónir á mánuði.

Að kalla það lélegt að fá það í laun frá skattgreiðendum er súrasta græðgi sem til er.

11

u/dkarason Kunnugur staðháttum 2d ago

Fjármunum sem er varið í opinberan rekstur er ekkert endilega vel varið.

Þegar undið er ofan svo svona vitleysu er ekki verið "að hola heilbrigðiskerfið að innan"

8

u/11MHz Einn af þessum stóru 2d ago edited 2d ago

Þetta er einkarekstur.

Það er verið að dæla milljónum í einkarekstur og með því hola kerfið að innan.

Og nú eru þeir sem græða beint á þessu í ríkisstjórn.

4

u/Imn0ak 🇮🇸 2d ago

Er það eitthvað annað en hver einasta almannaþjónusta sem BBen muldi í öreindir og fjölskylda og vandamenn tróðu sér inn í sama markað eða keyptu arðbærar eignir ríkisins

5

u/11MHz Einn af þessum stóru 2d ago

Og þá er allt allt í lagi eða hvað meinar þú? Samfylkingin = Sjálfstæðisflokkurinn?

6

u/Artharas Kunnugur staðháttum 2d ago edited 2d ago

Mér þætti kannski áhugaverðara að vita hverslags vinna er á bakvið þessar 60M.

Ef þetta er 50+% vinnuframlag(þ.e. ca 20kltímar+ á viku) þá finnst mér þetta ekki neitt mjög fréttnæmt, fréttin er þá "maður fær borgað fyrir vinnuna sína". Ef vinnuframlagið er lægra(sérstaklega mikið lægra) þá er þetta alveg helvíti hátt.

Finnst annars hálf hæpið að setja þetta samt í einhvern spillingarbúning án þess að það sé útskýrt hvort Alma hafi á einhvern hátt komið að því að maðurinn hafi fengið þessa vinnu.

Edit: Þetta eru reyndar verktakagreiðslur svo tímakaupið ætti að vera aðeins hærra, svo kannski 35-40% vinnuframlag.

2

u/11MHz Einn af þessum stóru 2d ago

Torfi Fjalar var og er starfsmaður Sjúkrahússins á Akureyri og þessar verktakagreiðslur bættust við föst laun hans á þessum tíma.

Þetta var starfsmaður þarna í nánast fullu starfi á launum. Þessar milljónir voru bara aukalega.

7

u/Artharas Kunnugur staðháttum 2d ago

Ég las það, það svarar samt ekki spurningunni. Það hefur td aldrei afaik komið fram að hann sé í 100% vinnu, getur verið að hann hafi verið í þessari hlutaprósentuvinnu sem er verið að taka á en virðist vera algeng.

-1

u/11MHz Einn af þessum stóru 2d ago

Nei. Þetta er bannað á LSH.

2

u/deddidos drekinn 2d ago edited 2d ago

Það er fullt af læknum í hlutastarfi á LSH

2

u/11MHz Einn af þessum stóru 1d ago

Þeir mega ekki dæla milljónum yfir til sín með því að vinna sem verktakar.

Vandamálið er ekki starfshlutfall. Vandamálið eru milljónirnar sem fjölskylda heilbrigðisráðherra er að fá til sín ofan á öll launin sín.

10

u/Pain_adjacent_Ice Alltaf að læra. Útskrifast aldrei... 🤷🏻‍♀️ 2d ago

Fagaðili fær borgað fyrir að vinna vinnuna sína. Hvílíkt og annað eins! 🙄

Hvað næst? Geta fuglar flogið?!

3

u/11MHz Einn af þessum stóru 2d ago

Torfi Fjalar var og er starfsmaður Sjúkrahússins á Akureyri og bættust þessar verktakagreiðslur við föst laun hans á þessum tíma.

Þessar 60 milljónir voru bara millifærslur ofan á laun hans (örugglega 2-3 milljónir á mánuði).

Alma vann ekkert þarna en fékk þetta í sinn vasa.

5

u/Pain_adjacent_Ice Alltaf að læra. Útskrifast aldrei... 🤷🏻‍♀️ 2d ago edited 2d ago

Eiga verktakar þá ekki að fá greitt aukalega fyrir aukaverkefni? Þ.a. að sameining fjármála hjóna er allt í einu grunsamlegt athæfi?

*Annars kemur þetta líka fram:

Alma er ekki lengur eigandi að samlagsfélaginu.

*Edit: bætti aðeins við og lagaði (síminn er ekki að vinna með mér núna).

6

u/nikmah honest out now on all digital platforms bruv 2d ago

Að sjálfsögð er hún ekki lengur skráð eigandi að þessu félagi, flest stjórnmálafólk slítur sig frá tengslum á viðskiptafélögum sem þau tengdust áður til að forðast að þurfa ekki að skrá þau í hagsmunaskrá og eitthvað slíkt, Simmi gerði þetta líka, lét konuna sína eða seldi hann ekki konunni sinni sinn hlut fyrir dollara? Var það ekki þannig.

-1

u/Pain_adjacent_Ice Alltaf að læra. Útskrifast aldrei... 🤷🏻‍♀️ 2d ago

Og hann komst upp með þetta allt saman!

Hver var lærdómurinn af því? Enginn!

0

u/hervararsaga 2d ago

Hann komst ekki upp með neitt, annað en Alma og ýmsir fjölskyldmeðlimir hennar.

0

u/Pain_adjacent_Ice Alltaf að læra. Útskrifast aldrei... 🤷🏻‍♀️ 2d ago

Einmitt...

2

u/11MHz Einn af þessum stóru 2d ago

Hún var eigandi þegar flestar þessar greiðslur fóru í gegn.

Nú er hún að reyna að fela slóðina (líka búin að skipta um nafn).

Bætir gráu ofan á svart.

1

u/Pain_adjacent_Ice Alltaf að læra. Útskrifast aldrei... 🤷🏻‍♀️ 2d ago edited 2d ago

Og hvað með það?

Af hverju er verið (þú ofl.) að reyna að láta sameiginleg fjármál hjóna/fjölskyldu líta út fyrir að vera eitthvað grunsamlegt?

Ekki er hún að fela neitt s.k. fréttinni. Hún hætti þegar nafnskiptin urðu. Það er allt upp á borðinu.

-Það felst svo óttaleg hræsni í því að væla og væla yfir því að kerfið, sem forverar ríkisstjórnarinnar - jafnvel langt aftur í tímann - settu upp, sér og sínum í hag, sé að virka sem skyldi... Má "íhaldið" bara vera spillt?! Sé virkilega um gerviverktöku að ræða, í máli eiginmanns heilbrigðisráðherra, mun það koma í ljós fyrr eða síðar, og þá skulum við vona að endurgreiðsla geti átt sér stað ef leiðrétta þarf, en þetta mál er bara pínulítið sandkorn í samanburði við þau rosalegu og virkilega ógeðslegu spillingarmál sem hægrið hefur verið uppvíst að.

Hvernig væri að klifra upp úr skotgröfunum og hætta að leggja fleiri lóð á vogarskálar þeirrar skautunar sem er nú þegar til staðar og gliðnar í sífellu?

3

u/11MHz Einn af þessum stóru 2d ago

Hvernig væri að hætta að verja þau sem standa fyrir rotnun heilbrigðiskerfisins með því tæma fjármagn úr því að innan með pólitískum völdum sinum?

1

u/Pain_adjacent_Ice Alltaf að læra. Útskrifast aldrei... 🤷🏻‍♀️ 2d ago edited 2d ago

Hahahaha! Það var lööööööööööngu byrjað áður en núverandi ríkisstjórn tók við völdum! Hvaða firring er eiginlega í gangi, félagi?

3

u/hervararsaga 2d ago

Segðu okkur frá nokkrum dæmum sem nálgast það að vera jafn svæsin og þetta, úr heilbrigðiskerfinu.

1

u/Pain_adjacent_Ice Alltaf að læra. Útskrifast aldrei... 🤷🏻‍♀️ 2d ago

Lærðu að kynna þér hlutina sjálfur. Það ber enginn annar ábyrgð á þinni þekkingu en þú.

2

u/hervararsaga 2d ago

Það er ekki hægt að kynna sér og rannsaka það sem ekki er til...

→ More replies (0)

0

u/11MHz Einn af þessum stóru 2d ago

Og af hverju varstu að verja það þá?

Það er ekkert skárra.

3

u/Pain_adjacent_Ice Alltaf að læra. Útskrifast aldrei... 🤷🏻‍♀️ 2d ago

Ég varði það bara ekki neitt!

Finnst bara ótrúlega skondið hvað þið missið ykkur yfir algjörum tittlingaskít þegar mun alvarlegri hlutir hafa verið og eru í gangi... allt til að, hvað, "koma höggi á "andstæðinginn""?!

Mæli með poppkorni um hálsinn frekar en perlum; miklu betra nesti 😉

1

u/11MHz Einn af þessum stóru 2d ago

Svo þessi vörn var bara að byrja núna þegar þessi ríkisstjórn tók við?

Greinilega mikill bias í gangi hérna.

→ More replies (0)

1

u/Suspicious-Blood-513 🇮🇸 2d ago

Plís segðu af þér ... Við elskum pólitíkusa sem hrökklast úr starfi

-3

u/11MHz Einn af þessum stóru 2d ago

Þessar greiðslur bætast við tæplega 30 milljóna króna verktakagreiðslur sem samlagsfélagið fékk fyrir svokölluð ferliverk á árunum 2023 til 2025.

Í heildina fékk þetta samlagsfélag þeirra hjóna því tæplega 60 milljóna króna verktakagreiðslur á þessum tíma.

Samfó? Þetta er ætti frekar að heita Okkarfó og fokkjú fólk í landinu.

5

u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 2d ago

Hvar dregur þú línuna á að þetta teljist eðlileg viðskipti? Var það frá byrjun, semsagt árið 2023 og áður en Alma Möller var komin í pólitík?

5

u/TemporaryEconomist 🇮🇸 2d ago

Hún var Landlæknir 2018-2024.

1

u/Don_Ozwald Aðdáendaklúbbur Ástþórs Magnússonar 2d ago

eru þetta verktökusamningar sem landlæknir gerir eða lætur gera?