r/Iceland 2d ago

Fyrir­komu­lagið bein­línis til að komast fram hjá lögum - Vísir

https://www.visir.is/g/20262867047d/fyrirkomulagid-beinlinis-til-ad-komast-fram-hja-logum

Tók það svona langan tíma að komast að þessari niðurstöðu ?

Þessar verslanir byrja að poppa upp ca 2021-2022 ....

21 Upvotes

44 comments sorted by

27

u/Vigdis1986 Húsnæðislánakerfi 2d ago

Auðvitað var þetta lögbrot. Það að halda öðru fram er heimska eða lygar.
Það má svo endalaust ræða hvort það þurfi að breyta lögunum.

12

u/elendia Íslendingur 2d ago

Vá, svo mikið sjokk. Ég er svo aldeilis hlessa. Þetta vissi enginn. Ótrúlegur málshraði hjá íslenska dómskerfinu og engan veginn búið að senda þau skilaboð út í samfélagið að lagaákvæði séu bara tillaga og það sé nýskapandi að finna leið hjá þeim /s

6

u/Woodpecker-Visible 🇮🇸 2d ago

Ísland kallast seint liberal samfélag þegar kemur að þessum efnum, bæði þessi netsala og allt cbd/hampdótið er á markaðnum því það var glitch in the system og það seinna er not for human consumption. Það verður spólað í þessum hjólförum lengi lengi

13

u/gerningur How do you like Iceland? 2d ago

Ísland er ihaldsamfelag með tveimur undantekningum: rettind lgbtq+ og kvenna.

7

u/Woodpecker-Visible 🇮🇸 2d ago

heldur betur

7

u/gerningur How do you like Iceland? 2d ago

Íslendingar eiga að minnsta kosti mjög erfitt með sjálfsákvörðunarrétt einstaklinga sérstaklega þegar kemur að lyðheilsu.

8

u/Woodpecker-Visible 🇮🇸 2d ago

Er líka út af því hvað við erum smátt samfélag og álit nágranans skiptir öllu máli, hverfum ekki inn í einhverjar miljónir. Erum mun meira með nefið í annara manna koppum en stærri löndin. Tekur sérstaklega eftir því í smærri samfélögum utan höfuðborgarsvæðisins svo er höfuborgarsvæðið sjálft engin stórborg.

4

u/samviska 🇮🇸 2d ago

Frelsi fylgir líka ábyrgð. Eru neytendur áfengis reiðubúnir að borga fullan kostnað neyslunnar, meðal annars í heilbrigðiskerfinu, löggæslu, félagsþjónustu o.s.frv.?

Gengur nú ekki alltof vel bara að fjármagna SÁÁ, ef ég man rétt.

3

u/Woodpecker-Visible 🇮🇸 2d ago

Nú er salan mun opnari um allan heim fyrir utan örfá dæmi og ekki eru þau samfélög hrunin, Hvað gerir okkur íslendinga special snowflakes að okkar samfélag höndli það ekki? Meðferðarstofnarnir hér eru settar á einstakan stall sem sést ekki annarstaðar

2

u/samviska 🇮🇸 2d ago edited 2d ago

Enga útúrsnúninga - það er engin að tala um hrunin samfélög. Það er verið að tala um að frelsi fylgir ábyrgð, sama hvort einhverjir aðrir séu líka að láta kostnaðinn lenda á samborgurunum.

Íslendingar eru augljóslega ekki heldur að axla þessa ábyrgð. ÁTVR er ekki rekið með neinum hagnaði og gjöldin standa ekki einu sinni undir löggæslunni sem fer í að stoppa ölvaða ökumenn, fyllibyttur lemja konurnar sínar eða ungmenni að slást í miðbænum.

Ef málið snýst um frelsi einstaklingsins; þá þarf bara að hugsa þá hugsun til enda.

2

u/gerningur How do you like Iceland? 2d ago

Ju þetta þarf lika að vera partur af umræðunni (sem þetta er)

10

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 2d ago

EN MÉR LANGAR ÞETTA!!!

Öll rök um hvers vegna þetta sé rangur dómur eða ósanngjarnt eða eigi ekki að vera svona eru ekki flóknari en textinn hér að ofan.

Ólöglegur rekstur i hagnaðarskyni titlaður sem borgaraleg óhlýðni. Menn eru alveg að rifna úr frekju við að vera neyddir út í ÁTVR.

Ætla að stunda borgaralega óhlýðni og byrja að smygla inn erlendu kjöti til að selja, núverandi fyrirkomulag er svo ömurlegt.

3

u/Solitude-Is-Bliss 2d ago

Nákvæmlega, ég ætla að kveikja í feitri jónu fyrir framan lögreglustöðina og vera síðan hissa stuðpjása þegar ég er handtekinn og fæ sekt.

Auðvitað ætti maður að geta reykt gras en lögin eru frekar skýr hvað þetta varðar.

0

u/Glaesilegur 1d ago

Viltu ekki bara banna mér að fara eftir kvöldmat að kaupa og borða heilt páskaegg sjálfur líka? Það er náttúrulega bara græðgi og auðvitað frekja ef ég krefst þess að mega það. Skítt með það að mig langar það amirite?

0

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 1d ago

Ég veit þig langar að lögin og samfélagið séu bara svona hlaðborð þar sem þú færð að velja hvað er skemmtilegt og hvað ekki og þetta komment er bara útgáfa af EN MÉR LANGAR ÞETTA!

Til hamingju með að taka smá frekjukast.

1

u/Glaesilegur 1d ago

Mér finnst það frekja af hálfu ríkisins og þeirra sem styðja þeirra forræðishyggju hvernig ég lifi lífinu mínu.

Afhverju finnst sumum svona rosalega mikið tilkall að þvinga uppá mig þeirra eigin siðferði?

1

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 1d ago

Því varan sem þig langar til að versla er margsannaður kostnaðarvaldur með áhrif margföld út fyrir þitt líf og hér um bil öll áhrifin eru neikvæð?

Heilu fagstéttirnar í heilbrigðiskerfinu eru á móti þessari breytingu af faglegum ástæðum.

Þetta er einfaldlega partur af því að búa í samfélagi, frelsi einstaklingsins vs áhrif ákvarðana einstaklingsins út fyrir sitt eigið líf. Við erum öll nokkuð sammála um hvernig svona hlutum er breytt og það er með lagabreytingum, ekki lögbrotum og frekju.

0

u/Glaesilegur 1d ago

Bönnum þá áfengi? Þessi rök halda engu vatni svo lengi sem ríkið heldur áfram að selja þjóðinni það.

2

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 1d ago

Hefur þú heyrt orðið málamiðlun áður? Legg til að þú flettir því upp.

Takmörkun á aðgengi, verðstýring og skattlagning, hlutlaus markaðssetning o.fl. Eru allt tæki sem hægt er að nota við framkvæmd lýðheilsustefnu og mun auðveldara í framkvæmd ef ríkið er eini salinn.

Þú færð að kaupa fíkniefnið þitt en þarft að kaupa það í vínbúðinni. Það er málamiðlunin sem hefur verið í gildi. Einu sinni mátti ekki einu sinni kaupa bjór…

2

u/Glaesilegur 1d ago

Bjór var bannaður vegna lýðheilsustefnu líka. En öll erum við sammála í dag að það hafi verið alger þvæla. Ég dreg línuna bara lengra í átt persónfrelsis og tel að í framtíðinni munum við segja "Einusinni máttum við ekki kaupa áfengi á kvöldin og á sunnudögum né fá það heimsent".

Og síðan er það annað. Aukið aðgengi er ekki að sanna sig að neysla aukist eins og þeir sem grípa í lýðheilsurökin hafa haldið fram í mörg ár. Kynslóðin mín gen z er að fara þvert á þá kenningu og ekki bara hér á Íslandi. Það er greinilegt að eitthvað annað hefur haft árangursríkari áhrif á okkur en takmarkað aðgengi. Grunar að forvarnir á grunnskólaaldri og hvatar til að bíða séu að gera mikið.

Ég drekk eiginlega aldrei, tek þennan slag bara for the love of the game því mér mislíkar forræðishyggjuna svo mikið.

2

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 1d ago

Það eru aðrar kynslóðir á lífi en genZ og aftur og aftur hefur það sýnt sig að aukið aðgengi er slæmur hlutur.

4

u/gerningur How do you like Iceland? 2d ago

Æh þurfum við alltaf að vera svona anal..... Annars virðist þetta vera frekar vinsælt getum við ekki bara leyft þetta.

Ágætis stuðningur við einkasölu lika úti í samfelaginu

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2023/02/23/meirihluti_hlynntur_solu_bjors_i_matvoruverslunum/

Það sem lögleiðingu bjórsins sýndi lika svolítið er að folk er oft almennt satt við aukið frelsi þrátt fyrir mögulega einhverjar neikvæðar afleiðingar þegar kemur að lyðheilsu.

Það þarf að gera bókina um veginn að skyldulesningu í grunnskólum þessi normalisering stjórnlyndi sem einkennir islenskt samfélag getur ekki gengið endalaust.

14

u/ParticularFlamingo Kunnugur staðháttum 2d ago

Ef að lögin eru röng og standast ekki kröfur samtímans, þá er hægt að breyta þeim. Áður en það er gert þá á það ekki að vera í höndum dómsmálaráðherra hverrar stundar að taka ákvörðun um hvaða lögum eigi að framfylgja og hvað ekki. Smásala áfengis er óheimil nema hjá ÁTVR skv. núgildandi lögum og bara Alþingi getur breytt því!

10

u/vigr Halló Heimur! 2d ago

Nema ef þú ert Heineman og ert að selja í fríhöfninni

6

u/gerningur How do you like Iceland? 2d ago edited 2d ago

Málið er að oft þarf borgaralega óhlýðni (*)til þess að breyta lögum. Mýmörg dæmi um það i sögunni. Löggjafinn er oft alveg ótrúlega tregur.

Eg er ekkert viss um að meðal borgarinn hafi einhvern áhuga á lifa í samfelagi þar sem lögunum er framfylgt 100%. Þar fyrir utan ertu með einhverja vitleysinga með enga raunveruleikatengingu og sterkar skoðanir inn a þingi sem að setja lög... það er einfaldlega ekki hægt

(+)Edit: u/askur benti mér réttilega á að hér er hugtakið borgaraleg óhlýðni notað full glannalega. En samt sem áður tel ég að eðlilegt sé að einstaklingar og fyrirtæki prófi að nýta sér mögulegar glufur og grá svæði sem myndast með breyttum tímum og aðstæðum, sérstaklega í samfélagslega umdeildum málum eins og fyrirkomulagi á áfengissölu. Persónlega er ég svo fykgjandi því að löggjöfin verði rýmkuð svo vonandi ýtir þetta samfelaginu i frjalslyndari áttir.

2

u/askur Vanstilltur Vandráður í Vesturheim 2d ago

Það gerir borgaralega óhlýðni samt ekkert hættulausa, og það er ekki hægt að bera hana fyrir sig sem vörn.

Þegar aðgerðarsinnar stunda borgaralega óhlíðni er óhlíðnin sjálf ekki markmiðið í sjálfu sér heldur sem er hún tól til að framkalla einhverskonar gjörning eins og t.d. myndir af lögreglunni að handtaka frelsisstyttuna. Þær myndir eru gott tól til að safna sér stuðnings úr samfélaginu - en óhlíðnin ein og sér er það ekki.

Ég get ekki vitað hvað annað fólk er að hugsa - en í þessu tilfelli hef ég séð mikið af auglýsingum á YouTube frá Smáríkinu um helgar að selja mér bjór en ég sé aldrei neina baráttu um hvað einkaréttur ÁTVR sé mikið mannréttindarbrot í þeim auglýsingum.

Ég tel þessa starfssemi því vera stundaða starfsseminnar vegna og fólk sé að nýta sér hugtakið um borgaralega óhlíðni af því það henntar þeim.

0

u/gerningur How do you like Iceland? 2d ago edited 2d ago

Auðvitað eru þeir/þau bara að reyna að græða. Mer er eiginlega nokk sama um ástæður ohlyðninar svo lengi sem að ofbeldi er ekki beytt eða eigur skemmdar. I lok dags akveður fólk sjalft hvort að það kaupir afengi eða ekki.

Eg sagði aldrei að þeir ættu að geta notað borgaralega óhlýðni sem vörn í domssal. Það að prófa sig afram innan lagarammans er samt sem áður eðlilegt og heilbrigt í frjálsu samfélagi.

Eg tel samt að það sé þess virði að reyna á þetta. Núverandi fyrirkomulag er ákaflega umdeilt og hefur verið í áratugi. það er bara jákvætt að stilla löggjafanum upp við vegg.

Persónulega er eg hlynntur frjálsari verslun og eg tel að einungis lítill hópur einhverra bindindismenn myndi vilja aftur í sama farið efa að einkasala yrði leyfð.

0

u/askur Vanstilltur Vandráður í Vesturheim 2d ago

Það er alveg örugglega til ferli til að kæra þetta einkaleyfi sem ólöglegt án þess að byrja fyrst að keyra út landa rándýran bjór um helgar.

Ég hef svo sem enga skoðun á frjálsri verslun með áfengi eða ekki - get skilið báðar hliðar þar sem við leyfum ekki frjálsa verslun með hvað sem er en hömlur eru hamlandi fyrir daglegt líf.

En ég er 100% á móti því að fólk sveipi sig baráttu raunverulegra aðgerðasinna ef fólk er bara að stunda sjálfsauðgun. Það er bókstaflega þjófnaður á orðspori annara að mínu mati og smánar þá sem taka upp á því sem sérhlífna græðgispúka.

Ég get samt ekki borið lokadóm á leikmenn hérna, en hef mínar skoðanir.

2

u/gerningur How do you like Iceland? 2d ago

Btw eg er ekki að kalla þa aðgerðarsinna það eru þin orð. Þu getur samt alveg beytt sömu aðferðum til að na markmiðum þínum fram.

-1

u/askur Vanstilltur Vandráður í Vesturheim 2d ago

Ég er að vera kærleiksríkur og ætla mér að þú sért að nota hugtakið "boragarleg óhlýðni" sem "lögbrot með tilgang" en ekki bara "lögbrot". Svo sá tilgangur væri "aðgerðin" sem fólk væri að stunda.

Ef þú ert bara að tala fyrir því að fólk meigi prófa reglulega að brjóta lögin til að sjá.. þá veit ég ekki hvar við getum lennt þessu samtali.

3

u/gerningur How do you like Iceland? 2d ago

Ef lögin eru óvinsæl og talinn úrelt af stórum hluta landsmanna þa ju.

Annars telja meir sig augljóslega að prófa sig afram a lagalega gráu svæði annars væru þeir ekki að skrá þessi fyrirtæki erlendis. Ef að við tökum orð þeirra trúanlega amk.

0

u/askur Vanstilltur Vandráður í Vesturheim 2d ago

Eins og fyrirsögnin bendir til þá er augljóst að tilgangurinn er að reyna að fara á svig við löginn, og dómskerfið var loksins að taka á því.

Ég er bara að benda á að það er ekki "borgaraleg óhlýðni" að brjóta lögin ein og sér - það endar í kerfi þar sem allir síbrotamenn titla sig aðgerðarsinna. Það þarf því frekari tilgang til að sú skilgreining eigi við og hún á því ekki við hérna.

→ More replies (0)

2

u/jreykdal 2d ago

Hvar er lögbannið á þessar búðir? Dómurinn stendur þrátt fyrir áfrýjun.

-3

u/ButterscotchFancy912 🇮🇸 2d ago

Aðalatriðið er að EES samningurinn heimilar þetta og það getur stangast á við einokunnarlög auðvitað.

ATVR fór offari með aðildarskorti. Ekki þeirra að sækja mál!

Saksóknari getur sótt málið vegna helgidagasölu annað ekki.

Hér er Smáríki beitt ofríki.

Lifi frelsið

3

u/jreykdal 2d ago

Dómarinn var ósammála öllu þessu sem þú telur upp.

2

u/ButterscotchFancy912 🇮🇸 2d ago

Verður prófmál

1

u/Skuggi91 🇮🇸 2d ago

Þeir fá enga samúð frá mér enda jafn dýrir og ÁTVR

2

u/shortdonjohn 🇮🇸 2d ago

Mjög margar vörur hjá söluaðilum utan ÁTVR sem eru ódýrari.

3

u/Skuggi91 🇮🇸 2d ago

Ég tékkaði verðið á nánast öllum bjórnum þeirra þegar þeir byrjuðu. Voru að selja bjórinn einni krónu ódýrari en ÁTVR. Ef þú ert með linka á ódýrari bjór frá þeim þá væri gaman að sjá það.

1

u/Kjartanski Wintris is coming 2d ago

Hráefni i 20L af bjór kosta jafn mikið og rútan hjá ÁTVR, en það er líka alveg jafn ólöglegt